Kristín Þorvaldsdóttir (1870-1944), ísfirska huldukonan

Myndin er verk í eigu Borghildar Þórisdóttur og sýnir Neðstakaupstað á Ísafirði

Í sýningarsal Listasafns Ísafjarðar í Safnahúsinu við Eyrartún verður föstudaginn 31. janúar 2025, kl. 17:00 opnuð sýning um listakonuna Kristínu Þorvaldsdóttur

Kristín Þorvaldsdóttir fæddist á Ísafirði 14. janúar árið 1870. Foreldrar hennar voru Þorvaldur Jónsson læknir og síðar útibússtjóri Landsbankans á Ísafirði og Þórunn Jónsdóttir frá Gilsbakka.
Kristín var vel menntaður myndlistarmaður og átti að baki lengri námstíma en aðrar konur í svipuðum sporum. Fjölskyldan var vel efnuð og fengu börnin bestu menntun sem völ var á og voru öll send til náms í Kaupmannahöfn. Hún virðist hafa búið yfir miklum hæfileikum og gæði verka hennar bera það með sér að hún hefur verið í góðri æfingu. Áhrif listaverka hennar voru hins vegar lítil þar sem þau voru aldrei sýnd opinberlega.

Það átti ekki fyrir Kristínu að liggja að verða fyrsta íslenska konan sem helgaði sig myndlist. Aðstæður hennar voru þó hinar ákjósanlegustu til þess hlutskiptis þar sem hún var ólofuð, bjó við rúman efnahag og var gædd góðum hæfileikum. Siðferðilegar skyldur og viðteknar venjur þess tíma höfðu þó meira að segja um ævistarf Kristínar. Hún tilheyrði þjóðfélagi sem ekki mat hæfileika kvenna að verðleikum og leit listiðkun öðrum augum en nú er gert.

Verkin á sýningunni eru öll í einkaeigu.
Ljósmyndir koma úr ljósmyndasafninu Ísafirði og textinn á sýningunni er tekinn úr bókunum „Huldukonur í íslenskri myndlist“ eftir Hrafnhildi Schram, og „Aldamótakonur og íslensk listvakning“ eftir Dagnýju Heiðdal.

DEILA