Ísafjörður: HG fær lóð í Sundahöfn

Kynnt hefur verið samkomulag milli Ísafjarðarbæjar og HG í Hnífsdal um lóðina Ásgeirsgötu 2. Gylfi Ólafsson, formaður bæjarráðs segi að áform HG séu að byggja í nokkrum áföngum á lóðinni frystigeymslu og vinnsluhús bæði fyrir hvítan og bleikan fisk. Gylfi segir að HG fái fast viðlegupláss fyrir Pál Pálsson ÍS við kantinn sem er þvert á nýja viðlegukantinn fyrir skemmtiferðaskipin.

Drög að umræddu samkomulagi, ásamt fylgiskjölum – deiliskipulagsuppdrátt og greinargerðar fyrir Suðurtanga, aðaskipulagsuppdrátt og greinargerð og reglur Ísafjarðarbæjar um úthlutun lóða voru lögð fram fyrst í skipulags- og mannvirkjanefnd og sían í bæjarráði.

Bæjarráð fól bæjarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

Í greinargerð með aðalskipulagsbreytingunni segir að skipulagsbreytingunum, m.a. fjölgun atvinnulóða, er ætlað að hafa jákvæð áhrif á atvinnulíf með aukinni samkeppnishæfni og stuðla að nýsköpun og frekari
atvinnutækifærum.

Samkomulagið sjálft hefur ekki verið birt.

DEILA