Lögreglan á Vestfjörðum hafði afskipti af einstaklingi á Ísafirði í síðustu viku vegna drónaflugs við opinbera byggingu.
Helgi Jónsson, lögreglustjóri á Vestfjörðum sagði að komið hefði fram kvörtun eða ábending frá fólki sem vinnur í stjórnsýsluhúsinu. Lögreglan skoðaði málið.
„Eins og staðan er í dag teljum við að komnar séu fram skýringar á þessu flugi og ætlum ekki að óbreyttu að hafast frekar að.“
Ekki hefur verið upplýst hver var að verki né í hvaða tilgangi.