Dýpkunarskipið Sóley kom til Ísafjaðar fyrir helgina og hóf dýpkun að nýju á laugardaginn. Hilmar Lyngmó, hafnarstjóri sagði að ætlunin væri í þesai atrennu að klára að dæla um 50 þúsund rúmmetrum af efni upp úr Sundunum. verið er að breikka rennuna inn í Pollinn.
Verkið er á samgönguáætlun frá 2019 og hefur dregist nokkuð að ljúka því. Hilma segi að kostnaður hafi hækkað síðan um 300 m.kr. eða svo og fjárveitingin í samgönguáætluninni dugi ekki lengur til þess að ljúka því.
Hilmar á von á því að þessum hluta verksins ljúki um miðjan marsmánuð. Af því veði mikil bót fyrir stóru skemmtiferðaskipin og auðveldi þeim að athafna sig.
Hlé veður gert á dýpkuninni í dag í tvær vikur.