Hyggjast ráðast í þjóðarátak í húsnæðismálum

Fjölmenni mætti á opinn fund í hádeginu síðasta mánudag hjá Húsnæðis og mannvirkjastofnun þar sem Inga Sæland sagði frá aðgerðum ríkisstjórnarinnar sem hyggst ráðast í þjóðarátak í húsnæðismálum.
Fundurinn sótti m.a. fólk úr byggingariðnaði, fjármálageiranum, verkalýðshreyfingunni og stjórnsýslunni. 

Meðal þess sem fyrsta sem ríkisstjórnin hyggst gera er að breyta reglum um skammtímaleigu húsnæðis. Liðkað verður fyrir umbreytingu á atvinnuhúsnæði yfir í íbúðarhúsnæði og fyrir uppbyggingu á einingarhúsnæði.

Þá verður byggt á ríkislóðum, samningar gerðir við sveitarfélög, aukið við uppbyggingu á óhagnaðardrifnu húsnæði og byggingareglugerð breytt til að bregðast við myglumálum og tjóni sem húseigendur verða fyrir vegna slíkra galla. 

Inga Sæland sagði meðal annars í ávarpi sínu:

„Það er sárara en tárum taki að sjá að þúsundir íbúða eru í skammtímaleigu á meðan skortur er á húsnæði almennt.  Allt of margir þurfa að flytja mörgum sinnum á ári, með börnin sín og skipta um skóla og eiga ekkert öryggi. Við ætlum að breyta því. Við ætlum að koma þaki yfir höfuðið á fólkinu okkar. Það er grundvöllurinn að því eiga gott og fallegt samfélag. Efnaminna fólk á líka rétt á þaki yfir höfuðið. “

Í erindi Elmars Erlendssonar, framkvæmdastjóra húsnæðissviðs HMS, kom fram að HMS hefði árið 2024 úthlutað stofnframlögum fyrir rúmlega 6,3 milljarða króna til 502 nýrra leiguíbúða fyrir tekju- og eignaminni heimili. Samtals hefði 32 milljörðum króna verið úthlutað af ríkinu frá árinu 2016, eða til rúmlega 4.000 íbúða. 

Elmar fór yfir samsetningu almenna íbúðakerfisins, en þar er Bjarg íbúðafélag stærst, með rúmlega þúsund íbúðir í útleigu. Alls eru nú nærri 2.700 íbúðir komnar í notkun um allt land í gegnum almenna íbúðakerfið.

Björn Traustason, framkvæmdastjóri Bjargs leigufélags, fór að lokum yfir þá miklu uppbyggingu sem félagið hefur staðið fyrir frá stofnun fyrir níu árum síðan. Yfir 1000 íbúðir hafa verið afhentar leigutökum og enn fleiri eru í undirbúningi. 

DEILA