Hvað á að gera við flugeldaruslið?

Það var einstaklega fallegt veður á gamláskvöld til að skjóta upp flugeldum og var greinilegt að fáir létu kuldann á sig fá. Mikilvægt er að hreinsa vel upp eftir kvöldið.

Í Ísafjarðarbæ hefur sérstakur gámur hefur verið settur upp fyrir flugeldarusl á móttökustöðinni Funa í Engidal.

Mikilvægt er að koma leifum af flugeldum í ruslið áður en þær brotna niður og verða að drullu.

Íbúar eru því hvattir til að nýta sér gáminn sem fyrst. Þó svo að margir flugeldar séu að miklu leyti úr pappa eru ýmis önnur efni í umbúðunum sem gera það að verkum að pappinn sem eftir verður er ekki hæfur til endurvinnslu.

DEILA