Í svari Ísafjaðarbæjar við fyrirspun Bæjarins besta um aðgang að samkomulagi um lóðina Ásgeirsgata 2 segir að „Samkomulagið verður ekki afhent á þessu stigi, enda telst það til vinnugagna, með vísan í 5. tölulið 6. gr. upplýsingalaga um gögn sem undanþegin eru upplýsingarétti, og 1. mgr. 8. gr. um vinnugögn, þar sem endanleg ákvörðun í málinu hefur ekki verið tekin, samanber 1. tölulið 3. mgr. 8. gr. upplýsingalaga.“
Samkomulag um úthlutun lóðar við Ásgeirsgötu 2 á Ísafirði var kynnt á bæjaráðsfundi á mánudaginn. Ekki kemur fram hverjir eru aðilar að samkomulaginu en Gylfi Ólafsson, formaður bæjarráðs staðfesti að það er milli bæjarins og HG. Var bæjarstjóra falið að vinna málið áfram í samæmi við umræður á fundinum. Hvernig þær umræður voru kemur ekki fram.