Hundar veikjast vegna nagstanga og varar Matvælastofnun við þeim. Um er að ræða Chrisco tyggerulle med kylling & kyllingelever frá Kína sem Lífland flytur inn. Vart hefur orðið eituráhrifa hjá hundum eftir neyslu. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna í samráði við Matvælastofnun.
Matvælastofnun fékk upplýsingar um vöruna í gegnum RASFF hraðviðvörunarkerfi Evrópu um hættulega matvæli og fóður á markaði.
Innköllunin á við eftirfarandi framleiðslulotur:
- Vörumerki: Chrisco
- Vöruheiti: Chrisco Tyggerulle med kylling & kyllingelever
- Best fyrir: 01.12.2025 og 15.03.2026
- Nettómagn: 95 g
- Geymsluskilyrði: Þurrvara
- Framleiðandi: Chrisco
- Framleiðsluland: Kína
- Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru: Lífland, Brúarvogur 1-3 104 Reykjavík