Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um elstu íbúa landsins. Í dag eru 44 einstaklingar 100 ára og eldri og þrír þeirra eiga maka á lífi. Elsti núlifandi einstaklingurinn búsettur á Íslandi er kona fædd árið 1917 og er því 107 ára. Hún er búsett á Höfuðborgarsvæðinu.
Konur eru í meirihluta þeirra sem hafa náð 100 ára aldri eða alls 32 á meðan það eru 12 karlar sem eru 100 ára og eldri. Alls eru 24 einstaklingur 100 ára, þar af 18 konur og 6 karlar.
Þeir einstaklingar sem eru yfir 100 ára eru alls 14 konur en 6 karlar.
Ef við skoðum sérstaklega hvert ár þá eru 5 konur og 3 karlar 101 árs, 4 konur og 3 karlar eru 102 ára og 1 kona 103 ára. Þá eru 2 konur 104 ára, 1 kona 105 ára og ein kona er 107 ára.
Á Vestfjörðum er nú enginn sem náð hefur 100 ára aldri.