Drónamyndataka: með ólíkindum að ákveðnir starfsmenn stjórnsýsluhússins kvarti

Drónamynd af Silfurtorgi. Mynd: Bragi Axelsson.

Bragi Axelsson, lögmaður staðfestir að hann hafi verið að verki við myndatöku með dróna við stjórnsýsluhúsið á Ísafirði í síðustu viku. Hann var spurður að því hver tilgangurinn hafi verið.

„Það var falleg birta og ég tók nokkrar landslagsmyndir sem þó reyndust dekkri en ég vonaðist eftir. Setti drónann á loft við inngang skrifstofu minnar. Lögreglumaður kom við og sá myndirnar og fannst ekkert óeðlilegt við það og baðst afsökunar á að hafa truflað. 

Mér finnst gaman að taka myndir þó ég sé nú ekkert sérstaklega fær og langaði að standa aðeins upp og rétta úr mér og tók því nokkrar myndir. Ég hef tekið þúsundir landslagsmynda á drónann minn undanfarin ár án þess að fólk kvarti og með ólíkindum að ákveðnir starfsmenn í Stjórnsýsluhúsinu skuli láta svona.

Ég veit ekki betur en að lögreglumenn sjálfir taki oft drónamyndir þarna á svæðinu auk annarra dróna flugmanna. Það er með þetta eins og fleira að það er ekki sama hver er. Gaman að velta fyrir sér muninum á því að fljúga dróna þarna og taka bara myndir á farsíma því munurinn er sáralítill. Þarna kristallast bara óvild tiltekinna aðila í minn garð.“

 

DEILA