Blóðug myrkraverk í Tjarnarbíó

Ariasman í Kómedíuleikhúsinu, Haukadal.

Kómedíuleikhúsið er mætt til borgarinnar með blóðuga en sögulega leikstykkið Ariasman eftir Tapio Koivukari. Árið 2011 kom út samnefnd bók eftir Tapio sem vakti mikla athygli. Enda er hér á ferð sönn saga um Baskamorðin hrottalegu á Vestfjörðum árið 1615. Leikritið Ariasman verður sýnt í Tjarnarbíó í Reykjavík og verða aðeins þrjár sýningar í boði. Fyrsta sýning er fimmtudaginn 30. janúar kl.20.00. Næstu sýningar verða viku síðar eða miðvikudaginn 5. febrúar og daginn eftir fimmtudaginn 6. febrúar. Miðasala fer fram á tix.is

Ariasman er áhrifa- og átakamikið leikverk um eitt mesta óhæfuverk Íslandssögunnar, Baskavígin. Að haustlagi 1615 var 31 baskneskur skipsbrotsmaður veginn af vestfirskum bændum. Ariasman er leikgerð sem er byggð á samnefndri sögulegri skáldsögu Tapio Koivukari, um Baskavígin sem eru í raun fyrstu og vonandi einu fjöldamorð Íslandssögunnar. Þessir hrottalegu atburðir gerðust fyrir vestan haustið 1615 þegar 31 baskneskur skipbrotsmaður var veginn á miskunarlausan hátt af vestfirskum bændum undir forystu Ara Magnússonar, sýslumanns í Ögri, en Baskarnir þekktu hann undir nafninu Ariasman.

Áhöfnin á Arisaman er þannig skipuð. Höfundur Tapio Koivukari. Leikari Elfar Logi Hannesson. Ljós Sigurvald Ívar Helgason. Búningahönnuður Þ. Sunnefa Elfarsdóttir.  Tónlist Björn Thoroddsen. Leikmynd og leikstjórn Marsibil G. Kristjánsdóttir

DEILA