Benedikt Gunnar íþróttamaður Strandabyggðar 2024

Benedikt Gunnar Íþróttamaður Strandabyggðar 2024 ásamt Matas sem hlaut hvatningarverðlaun 2024. Mynd: Strandabyggð.

Íþróttaverðlaun Strandabyggðar fyrir árið 2024 voru afhent á þriðjudaginn, en þau eru valin af tómstunda, íþrótta- og menningarnefnd sveitarfélagsins eftir innsendum tillögum og mati nefndarinnar.

Íþróttamaður Strandabyggðar árið 2024 er Benedikt Gunnar Jónsson. 

Benedikt er bikar- og Íslandsmeistari í sínum aldursflokki bæði í kúluvarpi og kringlukasti og setti alls 5 Íslandsmet á árinu. Benedikt vann gullverðlaun á Gautaborgarleikunum í Svíþjóð og er talinn vera með 15 bestu kúluvörpurum heims í sínum flokki segir í rökstuðningi nefndarinnar. Benedikt er í unglingalandsliðinu í frjálsum íþróttum og hefur náð lágmörkum fyrir landsliðshóp 19 ára.

Hvatningarverðlaun Strandabyggðar fyrir árið 2024sem veitt eru fyrir aldurshópinn 12 til 15 ára, hlaut Matas Zalneravicius

Matas hefur æft skíðagöngu hjá Skíðafélagi Strandamanna frá barnsaldri og segir í umsögn nefndarinnar að hann hafi sýnt einstaka samviskusemi, dugnað og metnað. „Hann er góð fyrirmynd fyrir iðkendur á öllum aldri, bæði innan og utan SFS. Matas hefur sýnt ótrúlega seiglu með því að æfa allan ársins hring, óháð veðri og aðstæðum. Hann leggur sig fram við hlaup, hjólreiðar, skíðaiðkun og styrktaræfingar sem endurspeglar árangur hans og einbeitingu. Auk þess hefur hann verið ómetanlegur stuðningur í þjálfun og kennslu innan Skíðafélagsins.“

 

DEILA