Alls voru 224.963 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. desember síðastliðinn samkvæmt skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum einstaklingum í þjóðkirkjuna fækkað um 939 síðan 1. desember 2023.
Næst fjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 15.548 skráða meðlimi og í þriðja sæti yfir fjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag er Fríkirkjan í Reykjavík með 9.935 skráða meðlimi.
Frá 1. desember 2023 hefur fjölgun meðlima í trú- og lífsskoðunarfélögum verið mest í Siðmennt eða um 348 meðlimi.
Mest hlutfallsleg fjölgun var hjá Samfélagi Ahmadiyya-múslima á Íslandi, eða um 57,1%.
Alls voru 30.779 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga sem er 0,7% hækkun frá 1. des 2023.
Ef að einstaklingur er utan trú- eða lífsskoðunarfélaga þá hefur sá einstaklingur tekið afstöðu til þeirrar skráningar sinnar. Alls voru 89.935 einstaklingar skráðir með ótilgreinda skráningu. Ef að einstaklingur er með ótilgreinda skráningu þá hefur hann ekki tekið afstöðu til skráningar í trú- eða lífsskoðunarfélag.
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi.