Svikapóstar í nafni Skattsins herja á landsmenn

Nú milli jóla á nýárs herja svikulir aðilar á landsmenn og senda póst í nafni Skattsins sem rétt er að vara við.

Skattinum og Lögreglunni hafa borist ábendingar um að verið sé að senda út tölvupósta í nafni Skattsins þar sem sagt er að gerðar hafi verið breytingar á skattframtali og fólki boðið að smella á hlekk til að opna þjónustuvef eða skanna Qr kóða. 

Þessar sendingar eru ekki á vegum Skattsins heldur eru þetta netsvik.

Pósturinn er ekki frá Skattinum, linkurinn leiðir ekki á þjónustuvef Skattsins og rétt er að benda fólki á að smella ekki á hlekkinn og gefa ekki upp neinar persónu- eða fjárhagsupplýsingar

Gruni þig að sending sem þér hafi borist sé sviksamleg er gott ráð að tilkynna hlutaðeigandi fyrirtæki eða stofnun og/eða lögreglu.

Hafir þú orðið fyrir barðinu á svikahröppum skal leita til lögreglu.

  • Vefslóð óvenjuleg
  • Óskað eftir kortanúmeri, innskráningu með rafrænum skilríkjum eða öðrum fjárhagsupplýsingum
  • Málvillur og einkennilegt málfar
  • Tilkynning um inneign eða skuld sem þú áttir ekki von á
  • Skuld eða inneign ekki greidd eftir hefðbundnum traustum leiðum

Svikatilraunir sem þessar eru oft sannfærandi og trúverðugleiki þekktra fyrirtækja og stofnana eru notuð til að blekkja.

Gott ráð er að smella aldrei á hlekki sem berast, hvort sem grunur um netsvik er til staðar eða ekki.

Betra er að opna nýjan vafraglugga og finna vefsíðu stofnunarinnar eða fyrirtækisins upp á eigin spýtur

DEILA