Gamli Þór, björgunarskip Slysavarnafélags Landsbjargar, var flutt með varðskipinu Freyju frá Vestmannaeyjum vestur á firði þar sem skipið kemur til með að öðlast nýtt líf í þjónustu björgunarsveitarinnar Kofra á Súðavík.
Þór var hífður um borð í Freyju við Binnabryggju í Eyjum og haldið með skipið á Ísafjörð. Vel fór um björgunarskipið við bakborðs lunningu á aðalþilfari varðskipsins að því er kemur fram í frétt Landhelgisgæslunnar..
Á Ísafirði tók björgunarsveitarfólk á vegum Kofra við skipinu sem híft var frá Freyju með gámalyftara og sjósett í framhaldinu. Vel gekk að koma Þór frá borði.
Nýir eigendur sigldu Þór frá Ísafirði til Súðavíkur þar sem hann verður til taks.