Vegagerðin mun hefja sendingar nú í byrjun árs 2025 á SMS skilaboðum um snjóflóðahættu til vegfarenda um Barðastrandarveg (62) um Raknadalshlíð. Vegfarendur sem þess óska geta gerst áskrifendur að þessum viðvörunum. Sérstaklega er því beint til þeirra sem fara oft um veginn, vegna atvinnu sinnar, skólasóknar eða af öðrum ástæðum, til að nýta sér þessar viðvaranir.
Um er að ræða eftirfarandi stig vegna snjóflóðahættu:
A: varað er við snjóflóðahættu á næstu klukkustundum.
B: lýst yfir óvissustigi, sem þýðir að snjóflóðahætta er viðvarandi og vegfarendur hvattir til að vera ekki á ferðinni að nauðsynjalausu.
C: lýst yfir hættustigi, veginum lokað.
D: hættustigi aflýst og vegurinn opinn.
Þeim vegfarendum sem áhuga hafa á að fá viðvaranir er bent á þrjár leiðir til þess að skrá sig.
- Hægt er að senda Vegagerðinni ábendingu neðst hægra megin á vefsíðu Vegagerðarinnar www.vegagerdin.is þar sem kemur fram fullt nafn viðkomandi og gsm númer.
- Hægt er að senda tölvupóst þar sem kemur fram fullt nafn viðkomandi og gsm númer á netfangið umferd@vegagerdin.is
- Einnig er hægt að heyra í upplýsingasíma Vegagerðarinnar s. 1777.
Raknadalshlíðin er sjötta leiðin sem kemur inn í þetta kerfi. Fyrir eru gefnar út SMS tilkynningar fyrir snjóflóðahættu í Ólafsfjarðarmúla, Siglufjarðarveg, Súðavíkurhlíð, Fagradal og Flateyrarveg. Það er einnig hægt að skrá sig í þá hópa sé vilji fyrir því, með sama fyrirkomulagi.