Páll Brynjar ráðinn bæjarverkstjóri hjá Ísafjarðarbæ

Páll Brynjar Pálsson hefur verið ráðinn bæjarverkstjóri hjá þjónustumiðstöð Ísafjarðarbæjar og mun hann hefja störf í febrúar/mars 2025.

Páll er með gagnfræðapróf frá gagnfræðaskóla Akureyrar, hefur öðlast meirapróf og vinnuvélaréttindi, ásamt ADR réttindum. Hann hefur umtalsverða reynslu af og þekkingu á öryggismálum og setið námskeið þar að lútandi.

Frá 2021 til dagsins í dag hefur Páll starfað sem vakstjóri og öryggisvörður hjá N1. Árin 2018 til 2021 starfaði hann sem verslunarstjóri í Smiðjunni og frá 2007 til 2018 sem bílstjóri og öryggisfulltrúi hjá Samskip Ísafirði og í millitíðinni sem bílstjóri hjá Norðurbik (2012 til 2016).

Þar áður starfaði hann hjá Olís sem lagerstarfsmaður og sölumaður eða frá 1989 til 2007.

DEILA