Nýjar reglur um drónaflug 

Ísland hefur innleitt nýjar reglur Evrópusambandsins um drónaflug með útgáfu reglugerðar að því er kemur fram í frétt frá Samgöngustofu.

Reglurnar skipta starfsemi dróna í þrjá flokka:

  • Opinn flokkur: Fyrir einfalt flug áhugamanna og atvinnufólks, með áherslu á öryggi.
  • Sérstakur flokkur: Fyrir flóknari starfsemi, til dæmis flug utan sjónlínu, þar sem gerð er krafa um áhættumat og heimild.
  • Vottaður flokkur: Fyrir stærri dróna og flug með meiri áhættu, þar sem kröfur líkjast þeim sem gerðar eru í mönnuðu flugi.

Allir drónanotendur þurfa nú að skrá sig á flydrone.is.

Flugmenn með dróna yfir 250 g þurfa að taka próf og fá hæfnivottorð.

Markmið nýju reglnanna er aukið öryggi og samræmi við reglur annarra Evrópuþjóða.

DEILA