Mikilvægi samgöngusáttmála fyrir Vestfirði

Frá Dynjandisheiði. Nýi vegurinn er glæsilegur. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Á síðustu vikum hefur Vestfirðingar vakið athygli á nauðsyn samgöngubóta í fjórðungnum undir merkjum „Vestfjarðalínu“. Þetta ákall um sterkari samgönguinnviði Vestfjarða vísar til öflugra heilsárstenginga innan atvinnusvæða, öruggari samgangna milli svæða, og að leiðin frá höfuðborgarsvæðinu yrði að mestu leyti láglendisvegur.

Markmiðið hefur verið að blása í brjóst ráðamanna kjark til aukinnar uppbyggingar samgönguinnviða. Settur hefur verið upp sérstakur upplýsingavefur um „Vestfjarðalínuna“ þar sem nauðsynleg innviðaverkefni eru skilgreind. Þau snúa að jarðgangagerð og umfangsmiklum og mikilvægum vegabótum sem stytta ferðatíma, eykur umferðaöryggi og dregur úr viðhaldsþörf.

Efnahagsævintýrið skilar miklu

Samhliða ákalli til stórsóknar í uppbyggingu samgönguinnviða hefur atvinnulíf Vestfjarða minnt á skerf sinn til þjóðabúsins. Svæðið hefur notið mikillar velgengni og vaxtar í formi nýsköpunar og kraftmikils frumkvöðlastarfs. Þetta er efnahagsævintýri, byggir á miklum uppgangi Kerecis, fiskeldis og velgengni annarra fyrirtækja á svæðinu. Atvinnulíf á Vestfjarða hefur margfaldast að stærð á undanförnum árum í formi umsvifa og fjárfestingar í nýsköpun, lagareldi og þjónustu. Velta atvinnulífs Vestfjarða þrefaldaðist á árunum 2016-2023, og er hækkun húsnæðisverðs og fólksfjölgun  til marks um efnahagsævintýrið sem þar á sér stað.

Þessi kraftur í mannauði og uppbyggingu hefur skilað gríðarlegri aukningu skatttekna.  Í nýrri skýrslu KPMG kemur fram að samfélagsspor Vestfjarða síðustu fimm ára er 25.5 milljarðar og hafi rúmlega fimmfaldast á fimm árum. Með samfélagsspori er átt við þá upphæð sem Vestfirðingar  leggja til ríkissjóðs umfram það sem kemur til baka. Það sýnir að skattgreiðslur Vestfirðinga eru tvöfalt hærri en greiðslur ríkisins.

Þetta rímar við nýlega frétt Byggðastofnunar sem sagði hæstar skatttekjur sveitarfélaga á hvern íbúa verið í landinu vera á Vestfjörðum. Svo hefur verið síðustu fjögur árin.

Áframhaldið kallar á betri samgöngur

Áframhald þessa efnahagsævintýris kallar á verulega uppbyggingu samgönguinnviða. Viljum við áfram standa fremst meðal þjóða í lífskjörum verðum við að styrkja vegakerfið. Það er mikilvægt fyrir Vestfirðinga og þjóðina í heild.

Sáttmáli til 10 ára

Við höfum hvatt til þess að ríkisvaldið, sveitarfélög og einkaaðilar leggi hönd á plóg við gerð sérstaks samgöngusáttmála fyrir Vestfirði þar sem samgöngum yrði lyft á viðunandi stig á næstu 10 árum. Fyrirmyndin er sótt til sáttamála sem gerður var um samgöngubætur á höfuðborgarsvæðinu.

Nú reynir á þingmenn og nýja ríkisstjórn um frumkvæði og forystu til þessa verkefnis og tryggja greiða leið fyrir efnahagsævintýrið á Vestfjörðum. Mikilvægt skref væri að setja sérstakan samgöngusáttmála fyrir Vestfirði í stjórnarsáttmála.

Undir liggja ekki aðeins hagsmunir Vestfirðinga heldur þjóðarinnar í heild. Frumkvæði í þessum efnum myndi tryggja vöxt og velsæld, Vestfirðinga sem og annarra.

Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Vestfjarðastofu, Unnar Hermannsson, framkvæmdastjóri Kubbs á Ísafirði og Halldór Halldórsson, forstjóri, Íslenska kalkþörungafélagsins í Bíldudal.

DEILA