„Hvað gerum við þegar við getum sagt með vissu að heildar hamingja samfélags muni aukast við að gera 10% af íbúunum að þrælum hinna?“
Þetta er minnisstæðasta setningin sem ég heyrði á minni skólagöngu. Ég man heilt yfir ekki eftir einstökum setningum eða fyrirlestrum úr skóla og ég efast um að ég geti yfir höfuð farið með eitt einasta ljóð úr skólaljóðunum, þótt ég hafi lært þetta allt utanbókar í grunnskóla. En ég man þessa.
Þetta er vissulega fáránleg setning sem á sér ekki stoð í raunveruleikanum og engum dettur í hug að gera fólk að þrælum, þótt það þjóni hagsmunum heildarinnar. En þetta er enga síður stærri spurning en svo. Þetta er grundvallarspurning um lýðræðið. Hvað er raunverulegt lýðræði. Er lýðræði þeirra sterku sem vilja að meirihlutinn fái allt og minnihlutinn ekkert, raunverulegt lýðræði?
Frá því byrjaði að fylgjast með alþingiskosningum af alvöru hef ég heyrt umræðuna um jöfnun þingsæta. Fjölga ætti þingmönnum á höfuðborgarsvæðinu og fækka á landsbyggðinni. Það sé lýðræðislegt og helst eigi að gera landið að einu kjördæmi. Ein manneskja, eitt atkvæði.
Það væri vond niðurstaða fyrir Ísland. Höfuðborgarsvæðið þarf ekki meiri völd, Það hefur nægileg völd. Á Höfuðborgarsvæðinu er svo gott sem öll stjórnsýsla landsins. Miðstöð fjármála, flutninga, fjölmiðla og dómsvaldsins svo fátt eitt sé nefnt. Það gerist ekkert á Íslandi, án þess að það sé ákveðið á höfuðborgarsvæðinu á einn eða annan hátt.
Ekkert land í Evrópu er með sterkara höfuðborgarsvæði en Ísland. Það búa hlutfallslega margfalt fleiri á höfuðborgarsvæðinu hér á landi miðað við önnur lönd, t.d. í Skandinavíu.
Það er hinsvegar lífsnauðsynlegt fyrir Ísland og höfuðborgarsvæðið að til staðar sé blómlegt mannlíf á landsbyggðinni. Því án fólksins sem býr á landsbyggðinni, þá koma engir ferðamenn, engin matvæli verða framleidd, sjávarútvegur og fiskeldi, svo fátt eitt sé nefnt.
Það eru hagsmunir Íslands að til séu staðar landsbyggðarþingmenn til að tryggja að til staðar séu nauðsynlegir innviðir á landsbyggðinni, samgöngur, heilbrigðisþjónusta, skólar og nýsköpun. Því þannig byggjum við upp samfélag á landsbyggðinni, með fólki sem býr til verðmæti fyrir Ísland.
Árið 2010 var landið eitt kjördæmi í kosningum stjórnlagaþings. Ein manneskja, eitt atkvæði. Af 25 fulltrúm, voru tveir af landsbyggðinni. 92% voru frá höfuðborgarsvæðinu.
Umræða um kosningarkerfi er góð. Umræðan um lýðræðið er enn betri. En það er ekki raunveruleg lýðræði að meirihlutinn ráði. Það er lýðræði hinna sterku, sem er eitthvað allt annað.
Jón Páll Hreinsson,
bæjarstjóri í Bolungarvík