Leitin að Áslaugu hefur enn ekki borið árangur

Tálknafjörður

Í tilkynningu frá lögreglunni á Vestfjörðum kemur fram að leitin að Áslaugu B Traustadóttur, sem fram hefur farið á Tálknafirði undanfarna daga hefur enn ekki borið árangur.

Síðast var vitað um ferðir Áslaugar sunnudaginn 8. desember sl. Bifreið hennar fannst, mannlaus, á veginum rétt utan við þorpið á Tálknafirði, skammt frá flæðamálinu.

Ekkert bendir til þess að hvarf Áslaugar hafi borið að með saknæmum hætti.

Leitinni, sem hefur verið mjög umfangsmikil og nákvæm, hefur verið hætt um sinn. Henni mun þó verða fram haldið en þó með minna sniði.

Svæðisstjórn björgunarsveitanna á svæði 6 og lögreglan á Vestfjörðum vilja færa þakkir til allra viðbragðsaðila á Vestfjörðum sem tóku þátt í leitaraðgerðunum. En ekki síður er þeim viðbragðsaðilum sem komu lengra að færðar sérstakar þakkir. Þá er forsvarsfólki fyrirtækja á svæðinu færðar þakkir fyrir mikilvægt framlag, t.d. í formi vinnuframlags starfsfólks, láni á bátum, búnaði, húsnæði, hráefni til matargerðar og fl.

Þá unnu slysavarnakonur á svæðinu mikilvægt verkefni, en það var að sinna matseld fyrir alla þáttakendur leitarinnar. En þegar mest var munu um 100 manns hafa unnið að leitinni síðustu daga.

Lögreglan á Vestfjörðum hefur verið í sambandi við fjölskyldu Áslaugar undanfarna daga og upplýst um framvindu aðgerðanna. Hugur viðbragðsaðila er hjá ástvinum Áslaugar og öðrum ættingjum.

DEILA