Jólaaðstoð Rauða krossins

Í dag, 10. desember, fagnar Rauði krossinn á Íslandi 100 ára afmæli sínu. Árið 1924 var félagið stofnað vegna aukinnar vitundar um þörfina fyrir mannúðarstarfsemi á Íslandi en skortur var á kerfisbundinni neyðaraðstoð og félagslegum stuðningi fyrir þá sem lentu í áföllum.

Hjálpið Rauða krossinum að hjálpa fyrir jólin. Rauði krossinn á Ísafirði vill koma á framfæri jólaaðstoð sinni og óska eftir liðsinni samfélagsins.

Sjálfboðaliðar Rauða krossins um allt land leggja sig fram um að vinna mannúðarstörf þar sem sjónum er einkum beint að þeim sem minna mega sín og eru berskjaldaðir. Sjálfboðaliðarnir vinna störf sín af alúð og trúmennsku og eru markmið félagsins sem grundvallast á mannúð höfð að leiðarljósi.

Þó Ísland sé skilgreint sem ein af ríkustu þjóðum heims þá eru alltaf einhverjir sem eiga erfitt með að ná endum saman. Fólk getur lent í tímabundnum erfiðleikum vegna veikinda, atvinnumissis eða annars vanda og á þá rétt á lágmarks framfærslu samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga. Oftast dugir sú aðstoð í tímabundnum erfiðleikum, en jól og aðrir hátíðisdagar geta reynst fólki erfiðir, einkum barnafjölskyldum. Mikilvægt er að fólk geti gert sér dagamun á hátíðisdögum, farið í betri fötin sín, borðað góðan mat og gefið hvert öðru gjafir.

Þeir sem þurfa aðstoð við það geta fyllt út þetta form sem verður opið til 17 desember.

https://docs.google.com/forms/d/16z6quz1RjiCTdIf4G45QFPN_MNpcSmbRrHdYdspaVno/edit

DEILA