Frábær frumsýningarhelgi er að baki hjá Litla Leikklúbbnum á leikritinu Lápur, Skrápur og jólaskapið eftir Snæbjörn Ragnarsson, í leikstjórn Tinnu Ólafsdóttur. Þetta er fyrsta verkið sem Tinna leikstýrir með glimrandi árangri og er ég nokkuð viss um að þetta sé ekki í síðasta sinn sem við sjáum hana í þessu hlutverki. Uppselt var á báðar sýningarnar um helgina og við erum ekki frá því að allir gestir hafi fundið vott af jólaskapi eftir að hafa séð sýninguna. Sala er í fullum gangi á sýningarnar á næstu helgi.
Um er að ræða sannkallaða fjölskyldusýningu, þar sem börn á öllum aldri tengd aðstandendum sýningarinnar sátu æfingar og syngja nú lögin úr sýningunni heima hjá sér (að minnsta kosti er það raunin á heimili formannsins). Þetta er meira að segja það fjölskylduvæn sýning að ljósamaðurinn okkar, Dóra Jónasdóttir, gaf brjóst á miðri frumsýningu sem sýnir þá staðfestu sem áhugafólk innan Litla Leikklúbbsins sýnir hverju verki. Það er ekkert sem stoppar það að sýningin haldi áfram.
Lápur, Skrápur og jólaskapið er annað verkið sem við sýnum á árinu og við erum hvergi nærri hætt! Eins og góðum félagsskap sæmir fer félagið ört stækkandi og sumir meðlimir að stíga sín fyrstu skref á sviði í þetta skiptið.
En meira um Láp, Skráp og leitina að jólaskapinu. Skúli Þórðarson og Þórður Jóhann Guðbrandsson eiga stórleik sem tröllastrákarnir Lápur og Skrápur sem reknir eru úr Grýluhelli til að finna jólaskapið, þar sem þeir eru ekki hellum hæfir svona stutt í jól, hrekkjóttir og óþekkir. Bræðurnir hitta mannabarnið Sunnu sem vill allt geta til að aðstoða þá við að finna jólaskapið. Anna Ásgerður Hálfdánardóttir og Salka Gallo skipta með sér hlutverki Sunnu og hefur það verið aðdáunarvert að sjá svo ungar stelpur leggja þessa miklu vinnu á sig og skína á sviðinu, hvor á sinn hátt. Grýlu, Leiðindaskjóðu og Gáttaþef bregður einnig fyrir í leikritinu en með hlutverkin fara Hjördís Þráinsdóttir, Sædís Ólöf Þórsdóttir og Sveinberg Þór Birgisson.
Lápur, Skrápur og jólaskapið er frábær 50 mínútna jólasýning fyrir alla fjölskylduna sem kemur öllum í jólaskap og við hlökkum til að finna jólaskapið með góðum gestum að minnsta kosti tvisvar í viðbót um næstu helgi.
Gunnar Ingi Hrafnsson
Formaður Litla Leikklúbbsins