Vegagerðin hefur auglýst eftir tilboðum í lokaáfanga Dynjandisheiðar. Auglýsingin birtist nú í morgun, þann 16. desember. Boðinn er út nýbygging Vestfjarðavegar á um 7,2 km kafla og um 0,8 km kafla á Dynjandavegi. Vegurinn er að mestu leyti byggður í nýju vegstæði. Innfalið er gerð keðjunarplans og áningarstaðs segir í auglýsingunni.
Verkinu skal að fullu lokið 30. september 2026.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 16. desember 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 28. janúar 2025.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.