Björg Jónsdóttir ÞH 321(áður Guðbjörg ÍS 14) í slipp á Húsavík

Björg Jónsdóttir ÞH 321 ex Langanes ÞH 321. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Hér er Björg Jónsdóttir ÞH 321 í slipp á Húsavík, sú fyrsta af sjö sem Langanes gerði út á sínum tíma.

Björg Jónsdóttir ÞH 321 sem var 76 brl. að stærð, hét uppgaflega Guðbjörg ÍS 14 og var smíðuð í V-Þýskalandi árið 1959 fyrir Hrönn h/f á Ísafirði. 

Báturinn bar síðan nöfnin Hrönn ÍS 46, Sæbjörg SH 23, Farsæll SH 30, Langanes ÞH 321 áður en hann fékk það nafn sem hann ber á myndinni. En það var haustið 1979.

Í janúar 1985 fékk báturinn nafnið Fagranes ÞH 123 og síðar Aron ÞH 105, Reistarnúpur ÞH 273 og loks Stormur SH 333.

Af skipamyndir.com

DEILA