Verkefnið „Allir með“ er samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ og ÍF (Íþróttasamband fatlaðra).
Verkefnið er þriggja ára verkefni sem er liður í að ná markmiðum 30. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þar eru skýr ákvæði um viðeigandi aðlögun allra í íslensku samfélagi.
Verkefnið er styrkt af Félags- og vinnumálaráðuneytinu, Heilbrigðisráðuneytinu og Mennta- og barnamálaráðuneytinu.
Íþróttahreyfingin sér um framkvæmd verkefnisins sem verður unnið á tímabilinu 2023 – 2025.
Körfuknattleiksdeild Vestra á Ísafirði hóf í september að bjóða upp á körfuboltaæfingar fyrir börn og ungmenni á aldrinum 6-16 ára í samstarfi við Íþróttafélagið Ívar
Æfingarnar eru hugsaðar fyrir börn sem þurfa meiri stuðning en önnur, henta betur að vera í minni hópum og hafa aðgengi að fleiri þjálfurum á æfingum. Þar finna þjálfararnir leiðir til að aðlaga íþróttina að iðkendum svo þau geti notið sín á eigin forsendum, ásamt því að upplifa sig sem hluta af liði.
Nánar er sagt frá æfingum á Ísafirð á vef UMFÍ.