Alþingi samþykkti nýverið breytingu á lögum um Náttúruhamfaratryggingu Íslands (NTÍ) sem felur í sér heimild stofnunarinnar til þess að hækka iðgjöld tímabundið um 50%.
Í fréttatilkynningu frá NTÍ segir að atburðirnir, sem átt hafa sér stað á Reykjanesi undanfarið, hafi haft veruleg áhrif á fjárhagslega stöðu NTÍ. Stofnunin þarf á hverjum tíma að eiga fjármuni til að greiða bætur vegna tjóns á húseignum, innbúi og öðru lausafé sem vátryggt er hjá NTÍ.
Heimild til hækkunar á iðgjöldum NTÍ verður nýtt og frá og með 1. janúar 2025 og verða þau innheimt með 50% álagi samhliða brunatryggingariðgjöldum. Iðgjald fyrir húseignir, innbú og annað lausafé fer úr 0,025% í 0,0375% af vátryggingarfjárhæð.
Sem dæmi um áhrif þessara breytinga mun iðgjald til NTÍ af 80 milljón króna eign hækka úr kr. 20.000 á ári í kr. 30.000 á ári og iðgjald af innbústryggingu á 20 milljón króna innbúi mun hækka úr kr. 5.000 í kr. 7.500 á ári.