Víðtækt samstarf á sviði endurhæfingar og þjónustu við öryrkja

Þann 31. október var undirritaður samningur sem kveður á um víðtækt samstarf á sviði endurhæfingar og samhæfingu þjónustu við öryrkja.

Að samningnum koma 46 aðilar á sviði félags- og heilbrigðisþjónustu, sem skuldbinda sig til að eiga með sér samstarf og samvinnu um endurhæfingu einstaklinga sem á þurfa að halda.

Samningurinn tekur gildi 1. september 2025 og er mikilvægur liður í innleiðingu viðamikilla breytinga á örorkulífeyriskerfinu sem öðlast gildi á sama tíma.

Markmið nýrra laga er að bæta þjónustu og tryggja að hún sé samþætt og heildstæð gagnvart notendum. Enn fremur er örorkulífeyriskerfið einfaldað, dregið er úr tekjutengingum, fjárhæðir hækkaðar og bætt við greiðsluflokki sem tryggir enn fremur framfærslu sjúklinga.

Nýju kerfi er ætlað að auka líkur á endurkomu fólks á vinnumarkað, fyrirbyggja ótímabæra örorku, styrkja hvata til atvinnuþátttöku og jafnframt að bæta þjónustu og stuðning við einstaklinga sem ekki eru á vinnumarkaði vegna heilsubrests eða fötlunar.

Hlutaðeigandi einstaklingar fái einstaklingsmiðaða þjónustu innan viðeigandi kerfis sem byggir á virkri þátttöku þeirra sjálfra og samvinnu samningsaðila í þjónustuferlinu. 

Aðilar að samningnum eru Tryggingastofnun, Vinnumálastofnun, VIRK Starfsendurhæfingarsjóður, sveitarfélögin og veitendur heilsugæsluþjónustu og félagsþjónustu um allt land. Saman mynda þessir aðilar kerfisbundna heild um veitingu endurhæfingarþjónustu á landsvísu. Helstu markmið samningsins eru:

  • Að ná fram heildstæðri nálgun við endurhæfingu einstaklinga og samfellu í allri þjónustu.
  • Að undirbúningur að endurkomu á vinnumarkað hefjist eins fljótt og hægt er þegar heilsubrests verður vart, með snemmtækri íhlutun.
  • Að einstaklingum sé fylgt eftir milli þjónustukerfa þurfi þeir þjónustu fleiri en eins kerfis, ljóst sé hvernig ábyrgðin færist á milli þeirra og að hlutverk hvers þjónustuveitanda sé skýrt.
  • Að miðlun upplýsinga verði stafræn og fari fram í gegnum örugga þjónustugátt milli þeirra sem veita þjónustuna til aukins hagræðis fyrir notendur þjónustunnar.
DEILA