Stjórnmálaflokkarnir eru komnir á fulla ferð í kosningabráttunni. Viðreisn verður með kynningarfund á morgun á Ísafirði og sendir forystumenn flokksins. Formaðurinn Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, alþm. ,Jón Gnarr, fyrrv. forsetaframbjóðandi og frambjóðandi í Reykjavík mæta á fundinn ásamt oddvita flokksins í Norðvesturkjördæmi Maríu Rut Kristinsdóttur og verða á Dokkunni milli kl 17 og 19 og ræða við fundargesti og skýra stefnu flokksins.