Útflutningsverðmæti eldisafurða nam rúmlega 4,6 milljörðum króna í september. Það er um fjórðungs aukning frá sama mánuði í fyrra á föstu gengi. Þar með er útflutningsverðmæti eldisafurða komið í rúma 35 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum ársins og hafa aldrei verið meiri. Miðað við sama tímabil í fyrra er um 23% aukningu að ræða á föstu gengi. Eins og sjá má á myndinni hér fyrir neðan, þá er verðmæti eldisafurða um 14% af útflutningsverðmæti sjávarafurða á fyrstu níu mánuðum ársins og 5% af verðmæti vöruútflutnings alls. Þau hlutföll hafa heldur aldrei verið hærri á tilgreindu tímabili. Þetta má sjá í tölum Hagstofunnar um vöruskipti sem birtar voru í síðustu viku.
Þetta kemur fram í nýju fréttabréfi samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, SFS.
Mestu munar um laxinn
Ofangreinda þróun má að langstærstum hluta rekja til laxeldis. Þannig er útflutningsverðmæti eldislax komið í rúma 29 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum ársins og hefur aldrei verið meira. Miðað við sama tímabil í fyrra er um 35% aukningu að ræða á föstu gengi.
Þá segir í fréttabréfinu: „Það ætti nú að vera öllum ljóst að fiskeldi er nú þegar orðinn veigamikill liður í útflutningi Íslendinga og mun án nokkurs vafa verða enn fyrirferðarmeira þegar fram líða stundir. Sú þróun er afar jákvæð, enda eykur fiskeldi fjölbreytni í útflutningi og styrkir gjaldeyrisöflun þjóðarbúsins með tilheyrandi jákvæðum áhrifum á atvinnulíf og samfélög víða um land. Það má heldur ekki gleyma þeirri staðreynd að varanlegur vöxtur útflutningstekna er grundvallarforsenda sjálfbærs hagvaxtar og bættra lífskjara hér á landi.“