Súðavík: nýr rekstraraðili að Kaupfélaginu

Súðavík. Verslunin er til húsa í þessu húsi. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson..

Bragi Þór Thoroddse, sveitarstjóri segir að Súðavíkurhreppur hafi verið að semja við nýjan rekstraraðila á Kaupfélaginu – versluninni í Grundarstræti.

Nýr aðili heitir Sunnvør Johannesen og býr í Súðavík. Sunnvør kemur frá Færeyjum og kom með manni sínum, Jónstein Jóhannesen sem vinnur hjá Háafelli við fiskeldi.

Samningurinn felur í sér rekstur verslunar og léttan veitingarekstur í Grundastræti auk þess sem rekstraraðili mun sjá um mötuneyti fyrir Súðavíkurskóla.

Nýr rekstraraðili tekur við rekstri í dag, þann 1. nóvember 2024 og opnar vonandi sem fyrst.

DEILA