Í lok dags á morgun mun Þorgeir Pálsson, sveitarstjóri og oddviti fara í ótímabundið veikindaleyfi. Hann mun miðla til starfsmanna þeim verkefnum sem hann hefur unnið að og sem þeir leysa í hans fjarveru.
Þetta tilkynnti Þorgeir á fundi sveitarstjórnar á þriðjudaginn.
Á fundinum veitti sveitarstjórn þremur fulltrúum á T lista, Strandbandalagsins lausn frá störfum í sveitarstjórn. Það voru Sigríður Guðbjörg Jónsdóttir, Óskar Hafsteinn Halldórsson og Þröstur Áskelsson. Tvö þeirra Sigríður og Óskar voru aðalmenn í sveitarstjórn. Í stað þeirra taka sæti sem aðalmenn í sveitarstjórn, Grettir Örn Ásmundsson og Júlíana Ágústsdóttir. Varamenn eru Þórdís Karlsdóttir og Marta Sigvaldadóttir.
Vegna lausnabeiðnanna lagði Þorgeir Pálsson oddviti fram eftirfarandi bókun:
„Í dag samþykkti sveitarstjórn Strandabyggðar beiðni þriggja kjörinna fulltrúa um lausn frá störfum í sveitarstjórn. Áður höfðu tveir fulltrúar beðist lausnar. Samtals hafa því fimm kjörnir fulltrúar Strandabandalagsins beðist lausnar frá störfum í sveitarstjórn. Í amk fjórum tilvikum er ástæðan of mikið álag og áreyti sem þessir fulltrúar hafa orðið fyrir í sínu starfi. Allir lögu þeir upp með að gera vel fyrir sitt sveitarfélag. Allir lögðu þeir sig fram um að bæta og efla samfélagið. Allir lögðu þeir sig fram af heilindum og sannfæringu fyrir því að þeir væru að vinna rétt og vel fyrir Strandabyggð og íbúa þess. Allir höfðu þeir hagsmuni allra íbúa sveitafélagsins að leiðarljósi í sinni vinnu.
En það dugði ekki til. Endalausar ásakanir, niðurrif og nú síðast kom fram á síðasta sveitarstjórnarfundi bókun tveggja sveitarstjórnarmanna um að þeir hefðu fengið hótanir vegna starfa sinna í sveitarstjórn. Þetta hefur nú leitt til þess að þessir fulltrúar sjá sér ekki fært lengur, sín og fjölskyldna sinna vegna, að starfa í sveitarstjórn fyrir Strandabyggð. Þessi framkoma í garð kjörinna fulltrúa í sveitarstjórn er með öllu ólíðandi og á sér fá ef nokkur fordæmi.
Mikilvægt er að hafa það í huga að kjörnir fulltrúar í sveitarstjórn Strandabyggðar eru lýðræðislega kjörnir. Kosningarnar 2022 skiluðu afgerandi, lýðræðislegri niðurstöðu. Árásir á þessa fulltrúa sem hér eiga í hlut, alla fimm, eru um leið árásir á lýðræðið. Það er ekkert grín að misnota málfrelsi og rétt sinn til málflutnings í sveitarstjórn á þann hátt að draga þar sífellt inn til umræðu, mál sem eiga þar ekki heima. Mál sem höfðu þann tilgang einan að gera þessa og aðra fulltrúa meirihlutans og þeirra ákvarðanir fyrir samfélagið, tortryggilegar, draga úr trúverðugleika og skemma málefnalega vinnu. Þetta er líka árás á starfsumhverfi lýðræðislega kjörinna fulltrúa.
Fólk hefur verið sakað um frændhygli í samningum við verktaka. Því hefur opinberlega verið haldið fram að t.d. oddviti hafi sakað einstakling í samfélaginu um að hafa stolið tugum milljóna úr sjóðum sveitarfélagsins, svo dæmi séu tekin. Hvoru tveggja eru grafalvarlegar ásakanir, sem uppfylla öll skilyrði til málsóknar, kjósi menn svo.
Er þetta eðlilegt starfsumhverfi? Nei. Þetta er umhverfi litað af heift og ofbeldi og á ekkert skylt við málefnalega gagnrýni eða eðlilegan pólitískan ágreining um stefnu eða áherslur. Þetta er í raun ein tegund ofbeldis og það er mikilvægt að allir sem þetta lesa, skilji alvarleika þessa máls. Gerendurnir eru þekktir og þetta mun verða þeim til ævarandi skammar og minnkunar“.