Á vef Byggðastofnun er að finna margvíslegar upplýsingar í skýrslu sem nefnist Stöðugreining landshlutanna 2024 og inniheldur þrettán flokka, allt frá mannfjöldaþróun til efnahagsþróunar og lýðheilsu.
Hver þessara þrettán flokka skiptis í marga undirflokka þar sem farið er yfir vítt svið af opinberum gögnum til að gefa sem besta mynd af því hvernig landshlutarnir standa hver um sig í hinum ýmsu málaflokkum.
Í skýrslunni eru hlekkir á þau mælaborð opinberra stofnanna sem til eru, þar er hægt að glöggva sig nánar á upplýsingum sem fram koma í stöðugreiningunni og skoða jafnvel á sveitarfélagagrunni en ekki eingöngu landshlutagrunni.