PopUp verslun á Ísafirði um helgina

Sleepy.is ætlar að vera með Pop-Up verslun í gamla Landsbankahúsinu á Ísafirði dagana 29. – 30. nóv. Vörur frá Sleepy verða á 25% afslætti ásamt því að vinsælu handklæðin og lökin frá VEST verða á 20% afslætti.

Sleepy er framleidd í Belgíu og hefur yfir 30 ára reynslu í þróun og framleiðslu á rúmdýnum. Einnig hefur dýnan verið valin besta dýnan í Evrópu 3 ár í röð út frá könnun sem gerð var af neytendasamtökunum.
Áklæði dýnunnar er búið til úr ofnæmisfríu Purotex® og Adaptive®  sem heldur jafnvægi á líkamshitanum. Auðvelt er að renna því af dýnunni setja það í þvottavél á 60°.
Dýnan veitir góðan stuðning undir mjóbak og axlir. Hægt er að snúa dýnunni á tvo vegu þar sem önnur hliðin er mjúk og hin stífari og því hefur dýnan hentað fjölbreyttum kúnnahópi.

Það er Kristín Helga Hagbarðsdóttir sem stendur fyrir versluninni.
Opið verður bæði föstudag og laugardag frá 11:00-17:00.

DEILA