Á Vestfjörðum gengur yfir mikil úrkoma eins og vegfarendur urðu varir við strax í gær þegar vegir lokuðust í Hestfirði og í Dýrafirði vegna aurskriðna. Fyrir hádegi fór vegurinn um Trostansfjörð í sundur og er því lokaður.
Rétt áðan tilkynnti Vegagerðin að vegurinn í Skutulsfirði um Eyrarhlíð væri lokaður vegna aurskriðu og einnig er lokað yfir Steingrímsfjarðarheiði. Enn er lokað í Hestfirði og mikið vatn yfir veg við Dvergastein í Álftafirði og í Ísafirði.
Þessa mynd fékk Bæjarins besta senda í dag sem tekin var um kl11:30 frá Dynjanda í Arnarfirði.
Meðalrennsli í Dynjanda er innan við 3 m³/s, en í dag kannski samkvæmt sjónrænu mati 16-18 m³/s. Mynd: Sölvi Sólbergsson.
Við Klettháls er verið að byggja tvær brýr, beggja vegna við hálsinn. Rúnar Þór Konráðs Brynjólfsson var þar á ferð rétt áðan og hann sendi þessa mynd:
Það lítur ekki vel út með brúarsmíðina.
Uppfært kl 17:00. Lögreglan á Vestfjörðum var að tilkynna að önnur skriða hafi fallið á Eyrarhlíð og að vegurinn verði því lokaður áfram í kvöld og í nótt. Verið er að gera ráðstafanir vegna þeirra sem eru staðsettir ,,öfugu“ megin við heimili sín.