Litli leikklúbburinn sýnir jólaleikrit

Lápur, Skrápur og jólaskapið er fyndið og hjartnæmt jólaleikrit eftir Snæbjörn Ragnarsson sem Litli leikklúbburinn á Ísafirði sýnir nú í desember.

Tröllabræðurnir Lápur og Skrápur hafa verið reknir úr Grýluhelli vegna hrekkjaláta og þurfa að finna jólaskapið áður en dagur rennur og þeir verða að steini.

Bræðurnir fá óvænta hjálp frá mannabarninu Sunnu sem fer með þeim í ævintýraför alla leið að Grýluhelli.
Stórskemmtilegt leikrit fyrir börn og fjölskyldur sem vilja finna sitt eigið jólaskap.

Hlekkur á miðasölu:

https://app.glaze.is/t/Qw2QuotgU05C7AwWvBLG

DEILA