Jólaljósin tendruð í Ísafjarðarbæ

Næstu tvær helgar verða ljósin verða tendruð á jólatrjám í Ísafjarðarbæ.

Dagskráin verður með hefðbundnu sniði á hverjum stað; ljúfir jólatónar, jólasveinar sem gleðja bæði börn og fullorðna og kakósala.

Laugardagur 23. nóvember – Suðureyri
Ljósin tendruð á jólatrénu á Suðureyri klukkan 16:00.
Skólabörn syngja jólalög.
Kvenfélagið Ársól stendur fyrir kakó- og smákökusölu.

Sunnudagur 24. nóvember – Þingeyri
Ljósin tendruð á jólatrénu á Þingeyri klukkan 16:00.
Leikskólabörn syngja jólalög.
Höfrungur býður upp á kakó og piparkökur.

Laugardagur 30. nóvember – Ísafjörður
15:00: Kakó- og torgsala 10. bekkjar Grunnskólans á Ísafirði.
16:00: Hljómsveitin Villimenn spilar jólalög.
Ljósin tendruð á jólatrénu á Silfurtorgi.
Leiklistarhópur Halldóru syngur jólalög.

Sunnudagur 1. desember – Flateyri
Ljósin tendruð á jólatrénu á Flateyri klukkan 16:00.
Skólabörn syngja jólalög.
Kakó og piparkökur.

DEILA