Höfuðstöðvar Náttúrufræðistofnunar verða á Akranesi og starfstöð á Hvanneyri

Frá undirritun umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra á viljayfirlýsingu við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) um að styðja við uppbyggingu starfsstöðva Náttúrufræðistofnunar og fleiri opinberra stofnana ráðuneytisins á Vesturlandi.

Nýjar höfuðstöðvar Náttúrufræðistofnunar verða á Akranesi samkvæmt ákvörðun Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Ráðherra undirritaði á sunnudagdag viljayfirlýsingu við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) um að styðja við uppbyggingu starfsstöðva Náttúrufræðistofnunar og fleiri opinberra stofnana ráðuneytisins á Vesturlandi.

Í byrjun júlí á þessu ári sameinuðust Náttúrufræðistofnun Íslands, Landmælingar Ísland og Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn (RAMÝ), í eina stofnun – Náttúrufræðistofnun. Um 80 manns starfa hjá Náttúrufræðistofnuninni í dag, þar af eru um 40 starfsmenn í starfstöðvum stofnunarinnar á Akranesi, Akureyri, Breiðdalsvík og í Mývatnssveit. 

Sameining stofnananna er hluti af heildarendurskoðun og einföldun stofnanaskipulags ráðuneytisins sem einnig felur í sér stofnun nýrrar  Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar. Við endurskoðunina er lögð sérstök áhersla á að fjölga störfum utan höfuðborgarsvæðisins og eru nýjar starfstöðvar stofnananna á landsbyggðinni.

Viljayfirlýsingin sem undirrituð var í dag  er ætlað færa ný og laus störf stofnunarinnar á Vesturland, en í ályktun sem samþykkt var á Haustþingi Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi 2024 var skorað á ríkisstjórnina að fjölga opinberum störfum á Vesturlandi.

Einnig kemur fram í yfirlýsingunni að hluti starfsstöðva sem heyrir undir ráðuneytið og stofnanir þess verði í húsnæði Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri. Verður það útfært í samvinnu við stjórnendur viðkomandi stofnana. Verður verkefnið unnið í samvinnu við önnur ráðuneyti, Framkvæmdasýslu – Ríkiseignir, Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi og Borgarbyggð. Á Hvanneyri eru mikil tækifæri til samstarfs og samvinnu Landbúnaðarháskólans og Náttúrufræðistofnunar á fjölbreyttum sviðum rannsókna og vöktunar náttúrunnar. Auk þess er  Hvanneyri og náttúran umhverfis friðlýst svæði og einnig svokallað Ramsar-svæði, sem þýðir að öll nýting á svæðinu skal vera með sjálfbærum hætti með sérstaka áherslu á vernd votlendis og lífsvæði fyrir fugla á lands- og heimsvísu.

Náttúrufræðistofnun verður falið að vinna rannsóknaráætlun um vernd og nýtingu auðlinda í Breiðafirði í samstarfi við Náttúrustofur Vesturlands og Vestfjarða, Breiðafjarðarnefnd, Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi, Fjórðungssamband Vestfjarða og fleiri aðila.

Einnig verður hafin undirbúningur að tilraunaverkefni um aukna landvörslu við Breiðafjörð, en fyrirséð er að stýra þarf aukinni ásókn ferðamanna til að viðhalda verndunargildi Breiðafjarðar, eyja og nágrennis.

Þá verður á næstu þremur árum verði stutt við áform um rannsóknir og samstarf vegna tilnefningar á Snæfellsnesi sem UNESCO vistvangs (Man and Biosphere), með áherslu á íbúa, samfélög og náttúru á Snæfellsnesi.

DEILA