Strandveiðar eru ekki bara kjölfesta í mörgum sjávarbyggðum heldur líka mikil menningarverðmæti sem ber að stórefla fyrir atvinnuöryggi og möguleika komandi kynslóða til að stunda sjósókn á eigin forsendum án þess að gerast leiguliðar stórútgerðarinnar sem hefur yfir að ráða milli 80 til 90% allra aflaheimilda í dag.
Treystum Flokki fólksins til góðra verka.
Ég hef nú tekið slaginn og er í framboði með Flokki fólksins sem er eini flokkurinn á Alþingi sem hefur á þessu kjörtímabili staðið með eflingu strandveiða og á móti kvótasetningu á grásleppu með framsali og braski sem veikir enn frekar strandveiðikerfið. Það verður að stöðva þessa sífelldu samþjöppun í fiskveiðistjórnunarkerfinu og efla fjölskyldufyrirtæki í smábátaútgerð um land allt.
Verðmæti Strandveiða.
Á þessu ári var verðmæti strandveiðiafla um 5 milljarðar króna sem sýnir mikilvægi framlags þessarar atvinnugreinar til samfélagsins og þeirrar byggðafestu sem henni fylgir. Um 700 fjölskyldur byggja hluta afkomu sinnar af veiðunum og fjöldi afleiddra starfa verða til hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum í formi ýmiss konar verslunar og þjónustu. Þessi atvinnugrein hefur verið mikilvæg lífæð fyrir sjávarbyggðir víðsvegar um land.
Sköðum ekki lífríki sjávar.
Dragnótaveiðar á grunnslóð eiga ekki rétt á sér. Dragnótaveiðar skaða verulega sjávarbotninn og eyðileggja hrygningar- og uppvaxtarsvæði fiskistofna. Slíkar veiðar hafa verið leyfðar í Faxaflóa sem er viðkvæmt uppvaxtar og hrygningasvæði margra fiskistofna og þær munu skilja eftir sig til lengri tíma auðn, tóm og fiskleysi. Það er ekki hægt að réttlæta stórvirk þung botndræg veiðarfæri á grunnslóð eins og leyft hefur verið. Þetta þarf að stoppa strax.
Sjálfbærar umhverfisvænar veiðar.
Handfæraveiðar eru vistvænar og geta ekki valdið ofveiði eða raskað sjávarlífríkinu. Þær viðhalda öflugri strandveiðimenningu um land allt og styðja við ferðaþjónustu og skapa verðmæt störf í heimabyggð. Strandveiðar eru umhverfisvænar og hægt er að nota rafdrifin veiðarfæri og verið er að þróa umhverfisvæna orkugjafa fyrir strandveiðibáta. Í dag er olíueyðsla á hvert kíló af veiddum fiski minni vegna strandveiða, en vegna togveiða.
Þjóðin styður öflugar strandveiðar.
Í könnun Matvælaráðuneytisins sem gerð var í tengslum við verkefnið „Auðlindin okkar“ kom fram að 72% þjóðarinnar styðji eflingu strandveiða og að aflaheimildir til þeirra verði auknar verulega svo hægt sé að stunda að lágmarki 48 daga á sumri eins og alltaf var ætlunin. Undanfarið hafa veiðarnar verið stöðvaðar um mitt sumar sem er óásættanlegt og veldur eðlilega óánægju og togstreitu á milli landshluta þar sem fiskgengd er mismunandi á milli svæða. Það er mikilvægt að þingheimur hlusti á þjóðina og fari að vilja hennar.
Flokkur fólksins mun berjast af alefli fyrir eflingu smábátaútgerðar, réttlæti í sjávarútvegi og vernda sjávarbyggðirnar.
Lilja Rafney Magnúsdóttir
Höfundur skipar 2.sæti hjá Flokk fólksins í NV kjördæmi.