Fyrir réttum hálfum mánuði féll aurskriða í Hestfirði í árfarvegi Rjúkanda og lokaðist vegurinn og urðu nokkrar skemmdir á veginum.
Vegurinn opnaðist fljótlega til bráðabirgða en tekið til við viðgerðir síðar. Á laugardaginn var viðgerðum að verða lokið og var grafa að hreinsa upp úr árfarveginum við brúna og búið að koma veginum í gott stand.
Hesturinn var tignarlegur í vetrarveðrinu á laugardaginn. Skörðin á Snæfjallaströndinni blasa við.
Myndir: Kristinn H. Gunnarsson.