Knattspyrnudeild Vestri hefur ráðið Brenton Muhammad sem þjálfara meistaraflokks kvenna.
Brenton er öllum hnútum kunnur hjá Vestra. Hann var í fyrra ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna og tók svo alfarið við liðinu á miðju sumri. Brenton vann gott starf eftir að hann tók við og var mikill stígandi í liðinu. Einnig hefur Brenton þjálfað í mörg ár hjá yngri flokkum félagsins.
Það er því mikil ánægja að hafa skrifað undir tveggja ára samning við Brenton og tryggir það stöðuleika og áframhaldandi stíganda í liðinu.
Liðið byrjaði æfingar aftur um miðjan nóvember þannig að undirbúningur fyrir næsta sumar er þegar hafinn.