Vestri mætir Uppsveitum í körfunni

Meistaraflokkur karla hjá Vestra mætir liði Uppsveita í 2. deild karla á laugardaginn kl 16:00.

Vestramenn hafa farið ágætlega af stað í vetur og eru í þriðja sæti eftir að hafa unnið þrjá af fyrstu fjórum leikjum sínum. Uppsveitir eru skammt undan í fimmta sæti með tvo sigra í fjórum leikjum.

Lið Aþenu/Leiknis og KR-b trjóna á toppi deildarinnar en bæði lið eru taplaus á tímabilinu.

Staðan í deildinni

DEILA