Strandið Súgandafirði: búið að losa bátinn

Rétt fyrir 18 í dag tókst björgunarsveitum á Vestfjörðum að losa fiskibátinn sem strandaði í mynni Súgandafjarðar í morgun.

Um miðjan dag var farið að huga að aðgerðum, slöngubátur frá Björgunarsveitinni Björg á Suðureyri flutti mannskap og ýmsan búnað í fjöruna við bátinn, ljósavél, dælum og belgjum til að þétta bátinn ef á þyrfti að halda. Eftir að hafa skoðað aðstæður var talið að ekki þyrfti að draga bátinn langt áður en hann flyti upp vegna hve aðdjúpt var að strandstaðnum.

Um hálf fimm í dag var svo komin dráttartaug yfir í björgunarskipið Gísla Jóns sem losaði þá akkeri og hóf að toga í.

Dráttartaugin slitnaði við fyrstu tilraun og sett var sterkari taug á milli.

Um 18 var báturinn á floti og tekin aðeins frá landi. Þá var hann losaður úr Gísla Jóns og Kobbi Láka tók við að draga, meðan Gísli Jóns tók bátinn á síðuna svo hægt væri að beita öflugum dælum um borð í Gísla til að dæla úr bátnum. Talsverður leki var að bátnum og ljóst að hann hefði líklega sokkið ef ekki hefði verið hægt að dæla úr honum.

Þannig var báturinn dreginn inn til Suðureyrar og rennt upp í sjósetningarrennu í höfninni rétt upp úr klukkan 19 í kvöld.

Auk áðurnefndra björgunarskipa og báta tók björgunarbáturinn Stella frá Flateyri þátt í aðgerðum þar sem þurfti að flytja mannskap og tæki milli báta.

Í itlkynningu frá Landsbjörgu segir að aðgerðum sé nú lokið og allt björgunarfólk á heimleið.

Myndir: Landsbjörg.

DEILA