Ingibjörg Davíðsdóttir, sendiherra er efst á lista hjá Miðflokknum í Norðvesturkjördæmi. Bergþór Ólason alþm hefur færst sig um set og fer fram í Suðvesturkjördæmi fyrir flokkinn. Ingibjörg er í leyfi frá störfum sendiherra og er stjórnarformaður Íslenska fæðuklasans. Hún er Borgfirðingur, frá Arnbjargarlæk. Í öðru sæti er Gunnar Bragi Sveinsson fyrrv. alþm og ráðherra.
Listinn er þannig skipaður:
- Ingibjörg Davíðsdóttir, stjórnarformaður Íslenska fæðuklasans og sendiherra
- Gunnar Bragi Sveinsson, fyrrverandi ráðherra
- Sigurður Páll Jónsson, fyrrverandi þingmaður
- Hákon Hermannsson, Ísafirði
- Högni Elfar Gylfason, Skagafirði
- Finney Aníta Thelmudóttir, Akranesi
- Ílóna Sif Ásgeirsdóttir, Skagaströnd
- Friðþjófur Orri Jóhannsson, Hellissandi
- Erla Rut Kristínardóttir, Akranesi
- Hafþór Torfason, Drangsnesi
- Ásgeir Sævar Víglundsson, Dalasýslu
- Jökull Fannar Björnsson, Borgarbyggð
- Óskar Torfason, Drangsnesi
- Óli Jón Gunnarsson, Akranesi