Auður Kjartansdóttir sem er bæjarfulltrúi í Snæfellsbæ, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi.
Auður er búsett í Ólafsvík en er alin upp í Stykkishólmi.
Hún er fjármálastjóri hjá Fiskmarkaði Íslands, bæjarfulltrúi í Snæfellsbæ, stjórnarformaður Brúar lífeyrissjóðs og stjórnarmaður hjá Landssamtökum lífeyrissjóða.
„Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi. Ég brenn fyrir málefnum samfélagsins, mig langar til að leggja mitt af mörkum og hafa áhrif á nýjum vettvangi,“ segir í tilkynningu Auðar til fjölmiðla.