Hlíf Hrólfsdóttir hefur verið ráðin félagsmálastjóri Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps.
Starfinu gegndi áður Soffía Guðrún Guðmundsdóttir.
Hlíf er þroskaþjálfi, upprunnin á Hólmavík og hefur starfað þar um langt árabil. Hún er því flestum hnútum kunnug á starfssvæði Félagsþjónustunnar.