Aflamarki var úthlutað á 344 skip í eigu 274 aðila.
Heildarúthlutun er tæp 320 þúsund þorskígildistonn. Úthlutun í þorski er tæp 168 þúsund þorskígildistonn en var tæp 166 þúsund þorskígildistonn á síðasta fiskveiðiári.
Úthlutun í ýsu er rúm 38 þúsund þorskígildistonn og lækkar um 16 þúsund þorskígildistonn milli ára, en þá lækkun má rekja til þess að þorskígildisstuðull ýsu lækkaði úr 0,93 í 0,64 á milli ára.
Fyrirtæki með hæstu úthlutunina:
- Brim hf. 9,55%
- Samherji Ísland hf. 8,72%
- Ísfélag hf. 6,98%
- Fisk Seafood ehf. 6,10%
- Þorbjörn hf. 5,43%
Skip með hæstu úthlutunina:
- Sólberg ÓF 1 (2917), Ísfélag hf. með 10.305 þorskígildistonn
- Guðmundur í Nesi RE 13 (2626), Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. með 10.006 þorskígildistonn
- Drangey SK 2 (2893), FISK-Seafood ehf. með 6.786 þorskígildistonn
Af leyfðum heildarafla eru dregin frá 5,3% sem skiptast með eftirfarandi hætti:
- Skel og rækjubætur 1.993 tonn
- Byggðakvóti til fiskiskipa 5.645 tonn
- Byggðakvóti Byggðastofnunar 6.302 tonn
- Frístundaveiðar 200 tonn
- Strandveiðar 11.100 tonn
- Línuívílnun 1.835 tonn
- Nýliðun vegna grásleppu 65 tonn