Arctic Fish kynnti hálfsársuppgjör sitt í morgun sem og niðurstöðu annars ársfjórðungs þessa árs.
Fyrri árshelmingur þessa árs var sá besti í sögu Arctic Fish. Rekstrarhagnaður nam 12 milljónum Evra og rekstrarhagnaður á hvert kíló slátraðs lax var 3,17 Evrur (um 382 kr).
Hafa þessir lykilmælikvarðar aldrei verið hærri.
Á öðrum ársfjórðungi þessa árs var slátrað 1.275 tonnum samanborið við 100 tonnum á sama tímabili í fyrra.
Rekstrarhagnaður annars árshluta nam 1,82 Evrum pr. kg en á sama tíma í fyrra var sú stærð neikvæð.
Vöxtur er stöðugur, meðal sláturþyngd er hærri en áður og hlutfall afurða sem fara í hæsta gæðaflokk er með besta móti.