Hvaða þjónustu nota íbúar og hvert fara þeir til að sækja þá þjónustu? Hvaða þjónustu þarf helst að bæta við eða efla? Hvaða þjónustu óttast íbúar helst að missa úr heimabyggð?
Þetta eru spurningar sem Byggðastofnun vill fá svör við meðal íbúa utan höfuðborgarsvæðisins vegna rannsókna á þjónustusókn og væntingum til breytinga á þjónustu.
Könnunin er liður í að skilgreina þjónustusvæði og fá mynd af viðhorfum íbúa mismunandi svæða til breytinga á þjónustu. Út frá sjónarmiði byggðamála og landshlutanna er þátttaka íbúa í könnuninni mjög mikilvæg.
Sérstaklega er mikilvægt að fá svörun úr dreifðum byggðum landsins svo unnt verði að vinna með niðurstöðurnar þannig að sem réttust mynd fáist einnig af þjónustusókn íbúa í fámennum byggðarlögum. Niðurstöður munu nýtast í vinnu við eflingu byggða um land allt.
Könnunin er aðgengileg á vef Byggðastofnunar