Mögnuð og æsispennandi glæpasaga sem gerist að vetri til á Vestfjörðum þar sem snjórinn og myrkrið geyma ógnvænleg leyndarmál.
Fyrir aldarfjórðungi týndust tvær litlar systur í óveðri og aldrei hefur neitt til þeirra spurst. En Hildur, stóra systir þeirra, er orðin rannsóknarlögreglukona á Ísafirði og óhjákvæmilega leitar hvarf systranna oft á hugann.
Lögreglan fyrir vestan er fáliðuð og fæst við margt. Þegar snjóflóð fellur á sumarhúsabyggð og Hildur og félagar hennar í lögreglunni mæta á staðinn finna þau í rústunum mann sem hefur verið myrtur í friðsælum bænum er greinilega eitthvað einkennilegt á seyði.
Satu Rämö er finnsk en hefur búið lengi á Íslandi. Hildur er hennar fyrsta glæpasaga og sló í gegn í Finnlandi, komst í efsta sæti metsölulista og náði einnig miklum vinsældum í Þýskalandi og víðar. Nú þegar eru komnar út tvær framhaldsbækur á finnsku.
Erla Elíasdóttir Völudóttir þýdd.
Smá útgáfuteiti verður í bókabúðinni (Penninn Eymundsson) á Ísafirði kl 16-17 þann 4. september.